Stofnfundur 6. nóvember

fimmtudagur, 16. nóvember 2023

Þann 6. nóvember var formlegur stofnfundur Rótarskots í Norðaustri (Satellite), nýs Rótarýklúbbs sem starfa mun í náinni samvinnu við Rótarýklúbb Húsavíkur. Stofnfélagar eru 11 talsins og voru 9 þeirra mættir á stofnfundinn, en tveir voru staddir erlendis. Við hlökkum mikið til að þróa skemmtilegan klúbb sem mun hafa það að leiðarljósi að láta gott af sér leiða í samfélaginu. Forseti klúbbsins á fyrsta starfsári hans er Guðmundur Baldvin Guðmundsson og eru áhugasamir af öllum kynjum, á öllum aldri og úr öllum starfsgreinum velkomnir að ganga í hópinn. Umdæmisstjóri Rótarý á Íslandi, Ómar Bragi Stefánsson tók félagana formlega inn í Rótarýhreyfinguna og var að vonum mjög stoltur þar sem þetta er fyrsta Rótarskotið sem stofnað er hér á landi