Fyrirtækjaheimsókn desembermánaðar

miðvikudagur, 3. desember 2025

Fyrirtækjaheimsókn okkar í desember var í dag í ráðgjafar- og þjónustufyrirtækið Sessor á Húsavík þar sem Andri Dan Traustason, framkvæmdastjóri, tók á móti okkur og kynnti starfsemi fyrirtækisins. Sessor er óháð ráðgjafar- og þjónustufyrirtæki á svið upplýsingatækni og fjármála og er með höfuðstöðvar í Kópavogi en rekur jafnframt starfstöðvar í Vestmannaeyjum og á Húsavík en starfstöðin á Húsavík var opnuð fyrr á þessu ári. Fróðleg kynning og miklar umræður um þær hröðu breytingar sem orðið hafa á upplýsingatækni, hvernig fyrirtækið er að þróa lausnir fyrir viðskiptavini sína og þau tækifæri sem fyrirtækið sér hér í Norðurþingi.