Fundur með E-klúbbnum

miðvikudagur, 26. nóvember 2025

 Í dag var fyrsti sameiginlegur Teamsfundur okkar í Rótarskoti með E-klúbbnum en klúbbarnir stefna að því að hafa sameiginlega fundi af og til. Þar sem þetta var fyrsti fundur klúbbana kynnti Aðalsteinn formaður okkar í Rótarskoti, Skúlagötuna sem er verkefni sem klúbburinn er með í undirbúningi. Hann var líka með jákvæða erindið skv. hefð okkar í Rótarskoti. Aðalerindi var hins vegar í höndum Elínar Björnsdóttur félaga í E-klúbbnum og fjallaði hún um heimsþingið í Calgary í sumar en Elín var ein af 15 þátttekendum Íslands á þinginu. Mjög fróðlegt og skemmtilegt erindi og kveikti áhuga félaga á þátttöku á heimsþingi í framtíðinni. Mikil ánægja var með þennan fyrsta sameiginlega fund og 16 rótarýfélagar tóku þátt í fundinum.